Tökum þátt - Göngum og hjólum á Unglingalandsmót
Fjölmörg ungmenni, sem búsett eru í sveitarfélaginu, eru skráð til þátttöku í hinum ýmsu keppnisgreinum og eru aðstandendur þeirra hvattir til að fylgjast með keppni og taka þátt í kvöldvökum, skipulögðum gönguferðum og öðrum uppákomum. Glæsileg dagskrá er á kvöldvökunum, sem fara fram í hátíðartjaldi UMFÍ sem staðsett verður við tjaldsvæðið sunnan við Suðurhóla, auk þess verður dagskrá á sviði við keppnissvæðið að deginum til og endar mótið með glæsilegri flugeldasýningu af Stórahóli.
Þar sem búast má við miklum fjölda gesta á Selfossi um verslunarmannahelgina eru íbúar hvattir til að fara sinna ferða gangandi og hjólandi eins og frekast er kostur. Með því má draga verulega úr álagi vegna bílaumferðar. Vænta má þess að talsverð umferð verði um bæinn allt frá fimmtudeginum fyrir verslunarmannahelgi fram á sjálfan frídag verslunarmanna, mánudaginn, enda verða fleiri fjölsóttir viðburðir en landsmótið haldnir á Suðurlandi þessa helgi. Umferð tengd þjóðhátíð í Vestmannaeyjum mun t.d. að miklu leyti fara um Selfoss vegna ferða Herjólfs frá Bakkafjöru.
Leitast verður við að beina umferð landsmótsgesta af Suðurnesjum og höfuðborgarsvæðinu um Suðurstrandarveg og Þrengslaveg til að minnka umferðarálag á Suðurlandsvegi og Austurvegi. Til að draga úr bílaumferð verða stöðugar strætóferðir innanbæjar, frá tjaldsvæðinu við Suðurhóla að keppnissvæðinu og um Tryggvagötu að Austurvegi. Umferð um Suðurhóla á milli Tryggvagötu og Vesturhóla verður takmörkuð við tjaldbúðagesti og annarri umferð beint um hjáleið. Þá verða einnig lokanir á Engjavegi á móts við gangbrautina við Iðu, enda gert ráð fyrir mikilli umferð gangandi vegfarenda á milli keppnisstaða. Íbúar eru hvattir til að taka tillit til þess að umferð kann að verða þung, haga vali á akstursleiðum með hliðsjón af umferð, nýta strætó eða fara sinna ferða hjólandi eða gangandi þegar það er hægt.
Tökum þátt og tökum á móti gestum með bros á vör!
Ásta Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri Sveitarfélagsins Árborgar



