Fimmtudagur, 23. maí, 2013
   
Letur

Óbreytt starfsemi hjá HNLFÍ í sumar - engin sumarlokun í Hveragerði

Að gefnu tilefni viljum við benda á að ekki verður um sumarlokun að ræða sumarið 2012 líkt og var árið 2011.  Heilsustofnun gerði 5 ára þjónustusamning við Velferðarráðuneytið sem tók gildi 1. janúar 2012. Við hvetjum alla til að kynna sér samninginn inn á þessari slóð, http://hnlfi.is/resources/Files/PDF/2011_thonustusamningur_HNLFI_SI.pdf

Meðferðarsvið Heilsustofnunar eru Heilsusvið, Færnisvið og Öldrunarsvið, biðlistar hafa aukist á öllum sviðum og dvalargestir verða að sækja um dvöl með lengri fyrirvara en oft áður vegna mikillar aðsóknar.  Á Heilsustofnun sækja hátt í 2000 endurhæfingarsjúklingar þjónustu árlega og auk þess að þjónusta dvalargesti í þverfaglegri endurhæfingu í samræmi við þjónustusamning, er nú einnig boðið upp á styttri heilsudvöl allt árið sem gestir greiða að fullu sjálfir.

Með ósk um gleðilegt sumar, starfsmenn Heilsustofnunar NLFÍ, Hveragerði

 

 

 

 

Skráning á póstlista

Fáðu vikulega sent til þín í tölvupósti nýjustu fréttirnar ásamt vefútgáfu af Dagskránni

Viðburðardagatal

maí 2013
M Þ M F F L S
29 30 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 1 2

Leita:

DFS.is - Dagskráin Fréttablað Suðurlands

Útgefandi: Prentmet ehf.
Ritstjóri: Magnús Hlynur Hreiðarsson
Vefstjóri: Helgi Þór Guðmundsson