Fundur um orkupakka þrjú á Selfossi

Mynd: Aðsend.

Stjórn Miðflokksfélags Suðurkjördæmis stóð fyrir opnum fundum um Orkupakka 3 á Selfossi og í Reykjanesbæ í vikunni. Frummælendur voru Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Frosti Sigurjónsson, Ingibjörg Sverrisdóttir, Styrmir Gunnarsson og Ögmundur Jónasson.

Vel á fimmta hundrað gestir sóttu fundina tvo auk þess sem fjöldi fólks fylgdist með beinu streymi af fundunum. Þessi mikli áhugi á fundunum sýnir svo ekki verður um villst að málefnið varðar þjóðina miklu og að það er þung og mikil undiralda í þjóðfélaginu vegna stöðu málsins á Alþingi íslendinga.

Stjórn Miðflokksfélags Suðurkjördæmis

Slóð á streymið frá Selfossi má nálgast hér.