-5 C
Selfoss

Margrét sýnir „Framtíðina“ í Stokkur Art Gallery á Stokkseyri

Vinsælast

Stokkur Art Gallery er listamannsrekið gallerí við Hafnargötu 6 á Stokkseyri. Þann 18. ágúst nk. verður opnuð þar fyrsta einkasýning Margrétar Loftsdóttur. „Framtíðin“ er yfirskrift sýningarinnar, en þar verða útskriftaverk Margrétar úr University of Cumbria ásamt nýjum viðbótum.

„Við viljum færa suðurströnd Íslands nýja gátt fyrir nútímalist og aðra þjóðmenningu. Við erum stolt að hefja þessa vegferð með einkasýningu Margrétar Loftsdóttur sem sprengir út málverkið og rammarnir horfnir út á haf,“ segir Stefán Hermannsson listamaður sem rekur galleríið.

Um sýninguna „Framtíðin“ segir í tilkynningu: „Með því að blanda saman sakleysi barnsins og grófum málarastíl er leitast við að ná fram ákveðinni þversögn í málverkinu. Notast er við gróf efni og skítuga liti ásamt expressionískum aðferðum sem mynda spennu innan málverksins. Hold barnsins er einstakt og viðkvæmt. Holdið er margslungið en samt svo náttúrulegt, það er fyrirbæri sem við þekkjum öll og kallar fram tilfinningar innra með okkur, það getur verið bæði fráhrindandi og aðlaðandi á sama tíma. Verkin eru stór og ögra formi málverksins. Lögun þeirra er óregluleg, rétt eins og líf kornabarnsins getur verið, ýmist úfið og tætt eða slétt og fellt.“

Hversu einstök
þessi nýja mannvera.
Lítil viðkvæm sál,
andar, nærist, sefur
enga vitneskju hefur
um hvað veröldin tekur og gefur.

Margrét Loftsdóttir (f. 1992) er nýkomin heim úr námi frá Bretlandi. Hún lauk diplóma gráðu frá Málaradeild Myndlistaskóla Reykjavíkur 2018. Í framhaldi að því bætti hún við sig BA gráðu (Fine Art) frá University of Cumbria. Margrét tók þátt í samsýningu í Listamenn Gallerý ásamt öðrum málurum vorið 2018.

Nýjar fréttir