7.3 C
Selfoss
Home Fréttir Sýningarstjóraspjall og leiðsögn með Kristínu í Listasafninu

Sýningarstjóraspjall og leiðsögn með Kristínu í Listasafninu

0
Sýningarstjóraspjall og leiðsögn með Kristínu í Listasafninu
Kristín G. Guðnadóttir listfræðingur og sýningarstjóri sýningarinnar.

Í Listasafni Árnesinga stendur nú sýningin Gjöfin tiil íslenskrar alþýðu – stofngjöf Ragnars í Smára til Listasafns ASÍ. Sunnudaginn 11. ágúst kl. 15:00 mun Kristín G. Guðnadóttir listfræðingur og sýningarstjóri sýningarinnar ganga með gestum um hana og ræða um þau verk sem þar má sjá og gjöf Ragnars í Smára sem lagði grunninn að Listasafni ASÍ.

Á sýningunni má sjá mörg öndvegisverk íslenskrar listasögu þar á meðal Fjallamjólk Kjarvals ásamt verkum eftir frumkvöðlana Ásgrím Jónsson, Þórarinn B. Þorláksson, Jón Stefánsson og síðari kynslóð listamanna eins og Gunnlaug Scheving, Jón Engilberts, Júlíönu Sveinsdóttur, Nínu Tryggvadóttur, Svavar Guðnason, Þorvald Skúlason og fleiri listamenn sem eru meðal þekktustu myndlistarmanna þjóðarinnar frá öndverðri síðustu öld. Sýningin er samstarfsverkefni safnanna, Listasafns ASÍ og Listasafns Árnesinga og til sýnis eru 52 málverk af alls 147 sem Ragnar gaf Listasafni ASÍ. Samtímis sýningunni gaf Listasafns ASÍ út veglega bók með sama nafni um stofngjöf Ragnars þar sem sjá má gjöfina í heild.

Kristín G. Guðnadóttir er mikilsvirtur fræðimaður um íslenska myndlist og hefur verið sýningarstjóri fjölmargra listsýninga og var safnstjóri Listasafns ASÍ á árunum 1997 – 2016. Hún er höfundur viðamikilla bóka um Kjarval annars vegar og Svavar Gunason hinsvegar auk fleiri bóka og greina um íslenska myndlist. í bókinni Gjöfin til Íslenzkrar alþýðu ritar Kristín um velgjörðarmanninn Ragnar í Smára og listaverkasafnið hans. Ritstjóri bókarinnar er Elísabet Gunnarsdóttir núverandi safnstjóri Listasafns ASÍ.

Sem fyrr eru allir velkomnir á sýninguna og aðgangur að safninu er ókeypis, líka á spjall og leiðsögn Kristínar. Sýningin mun standa til 15. september.