7.3 C
Selfoss

Forsetahjónin verða með á Unglingalandsmóti UMFÍ á Höfn

Vinsælast

Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands og Elíza Reid forsetafrú, ásamt börnum, ætla að taka þátt í Unglingalandsmóti UMFÍ sem haldið verður á Höfn í Hornafirði um verslunarmannahelgina.

Mótið verður sett með formlegum hætti á íþróttavellinum á Höfn föstudaginn 2. ágúst og er á dagskránni að forseti Íslands flytji þar ávarp.

Forseti Íslands er verndari ungmennafélagshreyfingarinnar. Guðmundur Hjaltason, langafi Guðna Th. Jóhannessonar, var mikill og ötull talsmaður hreyfingarinnar. Hann átti drjúgan hlut í að koma hreyfingunni á laggirnar skömmu eftir aldamótin 1900 og var annar tveggja fyrstu ritstjóra Skinfaxa, tímarits UMFÍ.

Líf og fjör á Unglingalandsmóti UMFÍ
Unglingalandsmót UMFÍ er vímulaus íþrótta- og fjölskylduhátíð sem haldin hefur verið frá árinu 1992 hefur unnið sér fastan sess hjá fjölskyldum um allt land sem helsti viðburðurinn um verslunarmannahelgi.

Mótið er fyrir 11–18 ára þátttakendur sem reyna sig í fjölda stórskemmtilegra íþróttagreina. Vinsælustu greinar mótsins eru knattspyrna, frjálsar íþróttir og körfubolti, en 18 aðrar íþróttagreinar verða í boði. Þar á meðal eru bogfimi, hlaupaskotfimi, frisbígolf, glíma, götuhjólreiðar, motocross, stafsetning, upplestur og meira að segja kökuskreytingar.

Margt í boði fyrir alla fjölskylduna
Þótt keppnisgreinar séu ætlaðar 11–18 ára þá er margt í boði fyrir aðra fjölskyldumeðlimi. Í námunda við íþróttasvæðið verður sett upp leikjatorg og verður þar hægt að fara í brennibolta, fótboltapool, ringó, ganga á stultum og margt fleira.

Auk alls þess sem fylgir aðgangi að mótinu verða tónleikar á hverju kvöldi á meðan Unglingalandsmótinu stendur. Á mótinu kemur fram helsta tónlistarfólk landsins. DJ Sura, sem hefur gert það gott með Cyber og Reykjavíkurdætrum, setur kvöldvökurnar strax fimmtudaginn 1. ágúst. Kvöldið eftir stíga á stokk rappbræðurnir í Úlfur Úlfur og Salka Sól, síðan koma Bríet og Evróvisjónstjarnan Daði Freyr. Una Stef og hljómsveit og GDRN loka svo mótinu sunnudagskvöldið 4. ágúst.

Meira um Unglingalandsmót UMFÍ á www.ulm.is

Nýjar fréttir