8.9 C
Selfoss
Home Fréttir Ljósleiðari lagður til heimila á Selfossi

Ljósleiðari lagður til heimila á Selfossi

0
Ljósleiðari lagður til heimila á Selfossi
Framkvæmdasvæði á Selfossi.

Míla og Gagnaveita Reykjavíkur vinna þessa dagana í sameiningu að lagningu ljósleiðara til heimila á Selfossi. Verkefnið er hluti af samstarfsverkefni fyrirtækjanna um samnýtingu jarðvegsframkvæmda, þar sem hvort fyrirtæki sér um framkvæmdir á ákveðnum svæðum og leggur tvö sjálfstæð ljósleiðarakerfi fyrir bæði fyrirtækin.

Jarðvegsframkvæmdir eru stór kostnaðarliður við lagningu ljósleiðara og valda hvað mestu ónæði fyrir íbúa. Með samstarfi fyrirtækjanna næst hagræðing, bæði fyrir fyrirtækin sem sameinast um jarðvegsframkvæmdir og fyrir íbúa sem verða fyrir mun minna ónæði af framkvæmdum en hafa samt val um ljósleiðara beggja fyrirtækja.

Framkvæmdasvæðin eru eins og sést á meðfylgjandi mynd. Blái liturinn sýnir svæðin sem nú er verið að vinna við að tengja í samstarfsverkefni Mílu og Gagnaveitu Reykjavíkur. Þá eru svæðin sem merkt eru með grænum lit þegar komin með tengingu við ljósleiðara Mílu.

Míla á mikið af innviðum víða og þar á meðal á Selfossi. Þar sem þegar eru til staðar röralagnir þarf aðeins að draga ljósleiðarastreng í rörin og tengja. Á þeim svæðum er ekki þörf á framkvæmdum á lóðum húseigenda.

Á því svæði sem Míla sér um framkvæmdir er jarðvinnu lokið á Grenigrund, Furugrund og Birkigrund. Næst hefjast framkvæmdir í Tjarnahverfi, og byrjum við í Ástjörn og Baugstjörn. Samkvæmt áætlun Mílu eiga tengingar að vera tilbúnar á þriðja og fjórða ársfjórðungi þessa árs.