0.5 C
Selfoss

Frjálsíþróttaskóli UMFÍ var haldinn á Selfossi

Vinsælast

Dagana 23. – 27. Júní var Frjálsíþróttaskóli UMFÍ haldinn á Selfossi. Alls voru 49 frískir krakkar á aldrinum 11-14 ára sem kláruðu skólann. Skólinn heppnaðist mjög vel og fóru krakkarnir ánægðir heim. Flest börnin komu frá HSK svæðinu en í ár voru krakkar frá Vík, Hafnafirði, Reykjavík, Kópavogi, Patreksfyrði, Búðarda og Blönduósi.  Markmið skólans er að kynna og breiða út frjálsíþróttir á Íslandi. Dagskrá skólans var mjög fjölbreytt þar sem til að mynda var kvöldvaka, fræðsla um svefn og viðtal við afreksíþróttamanninn Arnar Pétursson. Ásamt því var fjölbreytt hreyfing allt frá hefbundnum frjálsíþróttaæfingum, til sundsprells og ratleiks.

Í ár fengum við hlaupadrottninguna Silju Úlfarsdóttir til að halda fyrirlestur um ofþjálfun ásamt að kenna börnunum tækni í hlaupum á æfingu. Hilmar Örn Jónsson sleggjukastarinn, einn fremsti íþróttamaður sem við eigum í dag í frjálsum var einnig að þjálfa og Íslandsmethafin í þrístökki Sigríður Guðjónsdóttir, ásamt fleirum góðum þjálfurum. Skólinn fór fram við frábærar aðstæður þar sem stutt er í alla aðstöðu, til að mynda gistiaðstöðuna í Vallaskóla, frjálsíþróttavöllinn og sundlaugina. Viljum við þakka Sveitafélaginu Árborg og UMF. Selfoss fyrir velvild í garð skólans.

Skólinn gegnir mikilvægu hlutverki í að opna augu ungmenna fyrir ágæti íþróttaiðkunar og styðja fjölmargar rannsóknir þá fullyrðingu að ungmenni sem stunda íþróttir leiðast síður út í óreglu síðar á lífsleiðinni. Síðast en ekki síst öðlast ungmennin tækifæri til að kynnast hvert öðru og mynda tengslanet og auka hæfni sína í mannlegum samskiptum.

Frjálsíþróttaskólanum lauk með velheppnuðu frjálsíþróttamóti á fimmtudeginum þar sem að nokkrir persónulegir sigrar unnust. Eftir mótið var haldin grillveisla og fengu krakkarnir viðurkenningaskjöl fyrir þátttöku í skólanum. Krakkarnir kvöddust sátt og sæl eftir skemmtilega viku.

Skólinn vill þakka öllum þeim fjölda fyrirtækja sem lögðu

þeim lið, sá stuðningur er ómetanlegur, en þau voru: MS, Nettó, Sölufélag Garðyrkjubænda, Kjúklingabúið Vor, Hafnarnes Ver, Almarsbakarí, Guðni bakari, Myllan, Kjörís, Landsbankinn og Kökugerð HP.

 

 

Random Image

Nýjar fréttir