6.7 C
Selfoss

Ölfusárbrú sandblásin í sumar

Vinsælast

Í tilkynningu frá Sveitarfélaginu Árborg kemur fram að Vegagerðin vinni að undirbúningi viðhaldsframkvæmda á brú yfir Ölfusá. Um er að ræða Sandblástur og málun stálgrindar undir brúnni. Gert er ráð fyrir að sandblása og mála alla grindina í aðalbrúnni sem er undir brúnni. Gerðar eru miklar kröfur til varna vegna ryks og málningar, þannig er gerð krafa um að sett verði net á brúna báðum megin sem eigi að taka við öllum óhreinindum og málningu.

Til að koma ofangreindum vörnum fyrir þarf að gera brúna einbreiða í stuttan tíma þegar verið er að setja niður net þar sem ekki gönguleið, reiknað er með að sú vinna verði gerð á kvöldin þegar umferð er sem minnst.

Verktaka er ekki heimilt að vinna nema til kl. 20 á kvöldin við sandblástur og málningu vegna nálægðar við íbúðarbyggð og hótel. Verktími er áætlaður frá júnílokum fram til 25. ágúst.

Hraði á brúnni verður færður niður í 30 km/klst meðan verið er að ganga frá vörnum.  Gert er ráð fyrir að gönguleið verði opin allann verktímann, þó með einhverjum truflunum.

Verktaki fær afnot af svæði við brúna fyrir tæki og vinnuskúra í samráði við Sveitarfélagið Árborg.  Verktakinn mun gæta fyllsta öryggis vegfarenda sem og uppfylla skilyrði sveitarfélagsins um frágang að loknu verki og snyrtimennsku á verktíma.

Nýjar fréttir