-0.5 C
Selfoss

Sumarlestur á Bókasafni Árborgar að hefjast

Vinsælast

Undirbúningur fyrir sumarlestur er nú í fullum gangi á Bókasafni Árborgar á Selfossi. Sumarlestur er ókeypis lestrarhvetjandi námskeið fyrir krakka í 2. – 5. bekk. Börnin mega vera yngri eða eldri en viðmiðunin er að þau séu orðin stautfær í lestri.

Tveir hópar hafa verið í sumarlestri hverju sinni og hittast þeir einu sinni í viku þar sem ýmist er boðið upp á fræðslu og/eða skemmtun fyrir þátttakendur. Í hverri viku er dregið úr happadrætti þar sem börnin fá skemmtilega vinninga.
Sumarlesturinn endar með miklu fjöri í ratleik þar sem krakkarnir leita að vísbendingum og leysa þrautir. Markmið sumarlestrar er að viðhalda lestrarhæfni og kynna ævintýraheim bóka fyrir börnum.

Í sumar er þemað RISAEÐLUR!
Sumarlesturinn hefst fimmtudaginn 6. júni k. 13:00 og þá mæta allir sem ætla að taka þátt í sumarlestrinum en síðan verður börnunum skipt upp í hópa fyrir og eftir hádegi eftir því hvað hentar. Sumarlesturinn er alla fimmtudaga í júní frá og með 6. júní.
Skráning í sumarlestur er nauðsynleg. Þátttökublöðum hefur verið dreift í grunnskólum sveitarfélagsins en einnig er hægt að nálgast þau í afgreiðslu bókasafnsins eða senda tölvupóst á netfangið: afgreidsla@arborg.is

 

Random Image

Nýjar fréttir