1.1 C
Selfoss

Framkvæmd sóknaráætlana landshluta almennt tekist vel

Vinsælast

Framkvæmd sóknaráætlana landshluta hefur almennt tekist vel frá árinu 2015 að því er fram kemur í úttekt sem ráðgjafarfyrirtækið Evris gerði fyrir samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið. Í úttektinni var lagt mat á það hvort tekist hefði að ná markmiðum samninga um sóknaráætlanir. Þar var jafnframt bent á atriði sem betur mættu fara og lagðar fram tillögur til úrbóta.

Ráðuneytið hefur hafið undirbúning að gerð nýrra samninga um sóknaráætlanir landshluta í samráði við stýrihóp Stjórnarráðsins um byggðamál og landshlutasamtök sveitarfélaga en samningarnir renna út í lok þessa árs.

Liður í þeim undirbúningi var að láta gera úttekt á framkvæmd sóknáráætlana. Stýrihópur Stjórnarráðsins hefur fjallað um úttektina og telur hana vera gott innlegg við undirbúning nýrra sóknaráætlanasamninga sem og framkvæmd nýrra sóknaráætlana.

Um sóknaráætlanir landshluta segir í lögum um eru stefnumótandi áætlanir sem taka til starfssvæða landshlutasamtaka sveitarfélaga. Í þeim koma fram stöðumat viðkomandi landshluta, framtíðarsýn, markmið og aðgerðir til að ná þeim markmiðum.

Nýjar fréttir