9.5 C
Selfoss
Home Fréttir Bókin Dyr opnast eftir Hermann Stefánsson komin út

Bókin Dyr opnast eftir Hermann Stefánsson komin út

0
Bókin Dyr opnast eftir Hermann Stefánsson komin út

Hjá bókaútgáfunni Sæmundi á Selfossi er komin út bókin Dyr opnast eftir Hermann Stefánsson

Hvað eiga mannréttindi, svefnfarir, Esjan og bókaáritanir sameiginlegt? Hvernig skilgreinir maður fíl? Hvernig tengjast vitaverðir, leðurblökur, ljóstírur og póstsendingar? Er Guð í húsinu? Er Dauðinn á tónleikunum? Hvað er á bakvið dyrnar? Dyr opnast ber undirtitilinn: Lífið er trúnaðarmál en tegundarheiti bókarinnar er dregið af grísku kvikindi: Kímerubók. Hún hefur að geyma smásögur og smáprósa, sagnaþætti, æviágrip, tilraunir og esseyjur, prakkaraprósa og prósaljóð, fílófóseringar og firrur, lýrískar smámyndir og uppljóstrun um Esjuna.

Dyr opnast er fjórtánda skáldverk Hermanns Stefánssonar sem síðast sendi frá sér skáldsöguna Bjargræði (2016) sem hlaut einróma lof gagnrýnenda.