3.4 C
Selfoss

Vortónleikar Söngsveitar Hveragerðis

Vinsælast

Það er vor í lofti, lóan og maríuerlan syngja inn sumarið. Í tilefni þess ætlar Söngsveit Hveragerðis að taka undir með þeim og halda sína árlegu vortónleika í Hveragerðiskirkju sunnudaginn 5. maí nk. kl. 20:00.

Lagaval er létt og skemmtilegt, vandað að venju, eftir íslenska og erlenda höfunda. Má þar nefna John Lennon og Paul McCartney, Sigfús Halldórsson, Braga Valdimarsson og Gunnar Þórðarson. Þema tónleikanna eru lög Gunnars Þórðarsonar. Fer vel á því, en gestir Söngsveitarinnar að þessu sinni eru hinir landskunnu tónlistamenn Gunnar Þórðarson og Magnús Kjartansson.

Stjórnandi er Unnur Birna Björnsdóttir, undirleikarar; Magnús Kjartansson á píanó, Gunnar Þórðarson á gítar, Sigurgeir Skafti Flosason á bassa og Skúli Gíslason á trommur.

Söngsveitin vonast til að sjá sem flesta og að eiga ánægjulega kvöldstund.

 

Random Image

Nýjar fréttir