3.9 C
Selfoss

Sandra Dís ráðin sviðsstjóri fjármála-, stjórnsýslu- og menningarsviðs Ölfuss

Vinsælast

Sandra Dís Hafþórsdóttir.

Sandra Dís Hafþórsdóttir hefur verið ráðin í starf sviðsstjóra fjármála-, stjórnsýslu- og menningarsviðs hjá Sveitarfélaginu Ölfusi. Sandra Dís var ráðin eftir ráðningarferli hjá Hagvangi. Alls 13 sóttu um starfið en 4 drógu umsóknir sínar til baka.

Sandra Dís er gift Reyni Jóhannssyni fangaverði og húsasmiði og eiga þau tvö börn, 11 og 14 ára. Sandra Dís er viðskiptafræðingur og hefur starfað sem fjármálastjóri Árvirkjans seinustu ár. Áður starfaði hún til að mynda hjá KPMG og Kaupþingi. Hún hefur auk þess ríka þekkingu af sveitarstjórnarmálum, en hún sat m.a. í bæjarstjórn Sveitarfélagsins Árborgar í tvö kjörtímabil og sinnti þar fjölmörgum trúnaðarstörfum. Hún sat m.a. í bæjarráði 2012–2016, var forseti bæjarstjórnar 2017–2018, formaður fræðslunefndar 2010–2018. Þá sat hún í stjórn Tónlistarskóla Árnesinga 2010–2018, var fulltrúi í Héraðsnefnd Árnesinga, sat í stjórn Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga í sex ár, var formaður úthlutunarnefndar Uppbyggingarsjóðs Suðurlands ásamt því að sinna ýmsum öðrum störfum sem fulltrúi sveitarfélagsins.

Sem sviðsstjóri mun Sandra Dís taka hafa yfirumsjón með stjórnsýslu, fjármálum og starfsmannahaldi sveitarfélagsins og stofnana þess, auk menningarmála í víðasta skilningi þess orðs. Hún verður staðgengill bæjarstjóra og hefur ásamt aðalbókara og bæjarstjóra yfirumsjón með fjármálastjórnun bæjarins og stofnana.

Sandra mun hefja störf innan skamms og bætist þá við það öfluga teymi sem fer fyrir miðlægri þjónustu í Sveitarfélaginu Ölfus.

Nýjar fréttir