1.1 C
Selfoss

Bláskógabyggð mótmælir harðlega áformum um skerðingu framlaga til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga

Vinsælast

Sveitarstjórn Bláskógabyggðar sendi frá sér tilkynningu með bókun frá 21. mars s.l. vegna áforma um skerðingu framlaga til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.

Á fundi sveitarstjórnarinnar var lögð fram bókun stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 15. mars 2019, og minnisblað sviðsstjóra hag- og upplýsingasviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Bókun sveitarstjórnar Bláskógabyggðar er eftirfarandi:

Sveitarstjórn Bláskógabyggðar mótmælir harðlega þeim áformum fjármálaráðherra og ríkisstjórnar að skerða framlög til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um a.m.k. 3,3 milljarða á árunum 2020 og 2021. Skerðingin kemur harðast niður á útgjaldajöfnunarframlögum, en þau renna einkum til sveitarfélaga á landsbyggðinni sem hafa mörg hver veikan fjárhag. Skerðingin kemur einnig niður á framlögum til þjónustu við fatlað fólk og getur falið í sér að dregið verði úr þeirri þjónustu.
Áætlað tekjutap sveitarfélaga á Suðurlandi af framlögum til útgjaldajöfnunar og vegna fasteignaskatts er um 505 millj. kr. og vegna málefna fatlaðra 29 millj. kr. Framlög til málefna fatlaðra hafa ekki staðið undir rekstrarkostnaði og bætir þetta ekki stöðu þess málaflokks.
Árið 2015 voru samþykktar leiðréttingar á framlögum til málefna fatlaðra sem námu um 1,5 milljarði króna. Sú niðurstaða var samkomulag sem byggði á löngu og ítarlegu samráðsferli milli ríkis og sveitarfélaga. Að þurrka nánast út með einu pennastriki þann árangur sem þá náðist er í hróplegu ósamræmi við það samstarf við ríkið sem Samband íslenskra sveitarfélaga hefur lagt mikla vinnu í að styrkja á liðnum áratug.
Einhliða ákvörðun ríkisvaldsins af þessu tagi er í andstöðu við það formlega samráðsferli ríkis og sveitarfélaga sem hefur þróast á undanförnum árum og fela áform þessi í sér algeran trúnaðarbrest gagnvart sveitarfélögunum í landinu. Ekki getur með nokkrum hætti talist eðlilegt að áhersla á að bæta afkomu ríkissjóðs skili sér í skerðingum á tekjum sveitarfélaganna, sem standa undir mjög stórum hluta almannaþjónustu í landinu.
Sveitarstjórn krefst þess að áform um skerðingu tekna Jöfnunarsjóðs verði afturkölluð þegar í stað.

Nýjar fréttir