8.9 C
Selfoss
Home Fréttir Fimm milljónum úthlutað úr Sjóðnum góða

Fimm milljónum úthlutað úr Sjóðnum góða

0
Fimm milljónum úthlutað úr Sjóðnum góða
Selfosskirkja.

Í desember síðastliðnum var úthlutað úr Sjóðnum góða til 135 fjölskyldna og einstaklinga samtals 5 milljónum króna ásamt gjöfum frá ýmsum aðilum. Jólatré voru staðsett í Hveragerði og á Selfossi og hægt var að setja pakka þar undir til gjafa.

Gjafir til Sjóðsins góða berast frá einstaklingum, félagasamtökum, stofnunum og verslunum bæði í formi peninga og jólagjafa. Þetta árið bárust okkur bíómiðar frá Selfossbíó og einnig gaf Veitingastaðurinn Krisp veglega matargjöf. Tölvubúnaður sem notaður er við umsóknir og úthlutanir hefur Tölvu- og rafeindaþjónustan, (TRS), lánað án endurgjalds í nokkur ár. Einnig má nefna húsnæði, veitingar og prjónles, að ógleymdri mikilli sjálfboðavinnu.

Sjóðurinn góði var stofnaður 2008 í kjölfar bankahrunsins. Hann er samstarfverkefni Lionsklúbba, kvenfélaga, kirkjusókna, félagþjónustunnar í Árnessýslu og deilda Rauða krossins í Árnessýslu. Hlutverk sjóðsins góða er að styrkja einstaklinga og fjölskyldur sem standa höllum fæti og eiga ekki fyrir nauðþurftum fyrir jólin.

Starfshópur sem fulltrúar áðurnefndra aðila skipa og Hjálparstofnun kirkjunnar skipuleggja umsóknarferlið og annast úthlutun. Stuðst er við viðmið Hjálparstofnunar kirkjunnar varðandi mat á umsóknum. Úthlutað er í desember úr sjóðnum vegna undirbúning jólanna og á vormánuðum vegna ferminga. Allar umsóknir eru trúnaðarmál.

Hægt er að leggja inn á Sjóðinn góða allt árið um kring. Reikningsnúmer er 325-13-301169 og kt. 560269-2269.

Starfshópur Sjóðsins góða þakkar öllum þeim aðilum sem styrkt hafa sjóðinn á síðasta ári.