-0.5 C
Selfoss

Líkfundur við Arnarbæli í Ölfusi

Vinsælast

Í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurlandi kemur fram að um kl. 13:00 í gær hafi lögreglunni á Suðurlandi verið tilkynnt um líkfund á bökkum Ölfusár við Arnarbæli í Ölfusi. Það var göngumaður sem gekk fram á líkið sem talið er vera af Ríkharði Péturssyni fd. 3. apríl 1969 en hans hefur verið saknað frá því þann 23. janúar 2018 þegar hann fór af heimili sínu á Selfossi.

Rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurlandi ásamt tæknideild lögreglu höfuðborgarsvæðisins og kennslanefnd ríkislögreglustjóra vinna að rannsókn málsins.

Nýjar fréttir