6.7 C
Selfoss
Home Fréttir Rauður maður/Svartur maður eftir Kim Leine fyrsta bók nýs árs hjá Sæmundi

Rauður maður/Svartur maður eftir Kim Leine fyrsta bók nýs árs hjá Sæmundi

0
Rauður maður/Svartur maður eftir Kim Leine fyrsta bók nýs árs hjá Sæmundi

Stórvirkið Rauður maður/Svartur maður eftir verðlaunahöfundurinn Kim Leine er fyrsta bók Bókaútgáfunnar Sæmundar á nýju ári. Bókin kom út í fyrra og birtist nú í glæsilegri þýðingu Jóns Halls Stefánssonar.

Í þessum öðrum hluta Grænlandstrílógíu sinnar leitar Kim Leine fanga aftur til 18. aldar, í nýlendustofnun Dana á Grænlandi.

Særingamaðurinn Aappaluttoq, Rauður, bjargar lífi fársjúks sonar með því að koma honum í fóstur hjá trúboðanum Hans Egede og Gertrud eiginkonu hans. Þvert gegn vilja Rauðs er drengnum aldrei skilað því maðurinn í svörtu hempunni ákveður að skíra drenginn og halda honum hjá sér.

Hér er sagt frá upphafi kristniboðs og nýlenduvæðingar á Grænlandi, lygilegum tildrögum, ævintýralegri framkvæmd og hræðilegum afleiðingum, bæði fyrir nýlendubúana dönsku og Grænlendinga sjálfa.

Stílsnilld Leine er söm við sig, atburðarásin og lýsingarnar eru hér ennþá magnaðri en í fyrstu sögulegu skáldsögu hans, Spámönnunum í Botnleysufirði. Hér fer höfundurinn þó nær skjalfestum veruleika því flestar hinna fjölmörgu eftirminnilegu persóna eiga sér sögulegar fyrirmyndir og atburðirnir sem eru hvað ótrúlegastir áttu sér stað í raun og veru.

Rauður maður/Svartur maður er stórvirki í öllum skilningi, saga um árekstur ólíkra menningarheima og baráttu við hrikaleg náttúruöfl, saga um feður og syni, dauða og drykkjuskap, sturlun og stærilæti, guðstrú og glötun, uppgjöf og uppljómun sálarinnar.