4.9 C
Selfoss

Útgáfutónleikar Einars Bárðar í Hvíta húsinu í kvöld

Vinsælast

Í dag. föstudaginn 8. febrúar, kemur í verslanir hljómplatan „Myndir“ en þar er um að ræða upptökur af vinsælustu lögum Einars Bárðarsonar. Einar fagnaði 20 ára höfundarafmæli á síðasta ári og fóru upptökur fram allt síðasta ár undir stjórn Þóris Úlfarssonar. Platan inniheldur meðal annars lagið „Ég sé þig“ í flutningi Jóhönnu Guðrúnar, sem og hið goðsagnakennda „Farin“ í flutningi Klöru Elíasdóttur. Þessar útgáfur hafa vakið mikla athygli í útvarpi síðustu vikur.

Í vor voru 20 ár frá því lagið „Farin“ kom út með hljómsveitinni Skítamóral en lagið varð þeirra allra vinsælasta og sló í gegn nánast á einni nóttu. Svo fylgdu lögin með eitt af öðru; Birta, Spenntur, Myndir, Ennþá, Ég sé þig og fleiri og fleiri. Tónlistarmaðurinn og upptökustjórinn Þórir Úlfarsson stýrir upptökum á plötunni en hún verður bæði ljúf og hrjúf í anda höfundarins, með Nashville áhrifum, en Einar hefur alla tíð sótt sinn innblástur til amerískrar country-skotinnar dægurtónlistar. Á plötunni er ætlunin að setja ákveðna heildarmynd á þessi vinsælustu lög Einars og hugmyndin er að þessi helstu verk höfundar fái nýtt og heimilislegt líf í flutningi hans og félaga.

„Ég á þessum og öðrum listamönnum allt að þakka þegar kemur að minni aðkomu í tónlist. Sagan hefur oft snúið því þannig að Skítamórall eigi mér margt að þakka en það er þver öfugt. Ég á þeim allt að þakka. Þeir veðjuðu á fyrsta lagið mitt þegar frægðarsól þeirra var fyrir alvöru að taka á loft og ef þeir hefðu ekki valið að gera Farin að fyrsta útvarpslagi af plötunni Nákvæmlega, þá veit ég ekki hvernig líf mitt hefði þróast. Þannig að ég á þeim nánast allt að þakka,“ segir Einar.

Nafn plötunnar Myndir er vitaskuld tilvísun í eitt þekktasta lag Einars en um leið eru lögin hversdagslýsingar á lífi fólks eða myndir af lífi þess, eins og höfundurinn útskýrir nafngiftina. Meðal annarra flytjenda á plötunni eru Sigga Beinteins, Magni, Birgitta Haukdal, Friðrik Ómar, Stefán Hilmarsson, Einar Ágúst, Gunni Óla, Ingó, Karítas Harpa, Birgir Steinn og þá syngur Klara dóttir Einars lag á plötunni sem upprunalega var flutt af Nylon flokknum.

„Svo er það nú þannig að lífið fer í hringi. Steinunn Camilla sem var í Nylon flokknum hjá mér er eiginlega orðin hálfgerður umboðsmaður hjá mér og er að vinna í að aðstoða mig við útgáfuna á þessum disk en er bæði gaman og er ég í góðum höndum líka,“ segir hann.

Höfundurinn ætlar að fagna útgáfu plötunnar með sögustund og „singalong“ tónleikum í Hvíta húsinu á Selfossi föstudagskvöldið 8. febrúar og svo í Bæjarbíói í Hafnafirði, laugardagskvöldið 9. febrúar, ásamt fríðu föruneyti. Úrval söngvara kemur fram með Einari á tónleikunum og hljómsveitina skipa þeir Þórir Úlfarsson á píanó og hammond, Eiður Arnarsson á bassa, Hannes Friðbjarnarson á trommur og þeir Kristján Grétarsson og Pétur Valgarð Pétursson á gítara.

Nýjar fréttir