-0.5 C
Selfoss

Uppbyggingarsjóður Suðurlands auglýsir eftir umsóknum

Vinsælast

Uppbyggingarsjóður Suðurlands, sem er hluti af Sóknaráætlun Suðurlands, hefur það hlutverk að veita verkefnastyrki á sviði nýsköpunar, menningar og atvinnuþróunar á Suðurlandi. Markmið sjóðsins er að styðja við verkefni sem efla fjölbreytileika atvinnulífs og jákvæða samfélagsþróun á Suðurlandi. Veittir eru styrkir til:

  • Menningarverkefna til að efla menningarstarfsemi og listsköpun á Suðurlandi
  • Atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefna til að styðja við atvinnuskapandi og/eða framleiðniaukandi verkefni á Suðurlandi

„Við hvetjum alla sem hafa áhuga á að leggja inn umsókn að hafa samband við ráðgjafa sem starfa á vegumSASS. Þeir aðstoða og veita leiðbeiningar og ráð við gerð umsókna. Best er að hafa samband við okkur í síma eða með því að senda póst á veffangið styrkir@sudurland.is. Við hvetjum starfandi fyrirtæki á Suðurlandi sérstaklega til þess að sækja um. Ég leyfi mér að fyllyrða að öll eigi þau góða hugmynd sem vert er að sjá hvort ekki geti orðið að veruleika með styrk frá sjóðnum,“ segir Bjarni Guðmundsson, framkvæmdastjóri SASS í samtali við dfs.is.

 

Nánari upplýsingar:

Allar umsóknir þurfa að berast rafrænt í gegnum vefinn www.sass.is

Umsækjandi þarf að skrá sig inn á umsóknarformið með íslykli eða með rafrænum skilríkjum. Ef sótt er um í nafni lögaðila s.s. fyrirtækis, stofnunnar eða félagasamtaka þarf viðkomandi lögaðili að sækja um styrk með íslykli eða rafrænum skilríkjum þess lögaðila en ekki einkakennitölu verkefnastjóra.

Upplýsingar um úthlutunarreglur, leiðbeiningar við gerð umsókna og viðmið við mat á umsóknum er að finna hér

Umsóknir skulu berast fyrir kl. 16.00 þann 5. mars 2019.

Nýjar fréttir