-1.5 C
Selfoss

Leikfélag Ölfuss frumsýnir Saumastofuna

Vinsælast

Leikfélag Ölfuss frumsýnir verkið Saumastofuna eftir Kjartan Ragnarsson þann 8. febrúar næstkomandi. Leikstjóri að þessu sinni er Guðfinna Gunnarsdóttir en hún hefur starfað með Leikfélagi Selfoss frá barnsaldri og er starfandi formaður Bandalags íslenskra leikfélaga.

Níu leikarar taka þátt í sýningunni en það eru þau Álfheiður Østerby, Árný Leifsdóttir, Ásta Margrét Grétarsdóttir, Daníel Máni Óskarsson, Erla Dan Jónsdóttir, Ingólfur Arnarson, Jónheiður Ísleifsdóttir, Magnþóra Kristjánsdóttir og Róbert Karl Ingimundarson.

Frumsýning verður föstudaginn 8. febrúar í Versölum. Miðasala í síma 692 0939 kl. 17-20 og á midasalalo@gmail.com.

Næstu sýningar eru sunnudaginn 10. febrúar, þriðjudaginn 12. febrúar, þriðjudaginn 19. febrúar, föstudaginn 22. febrúar og sunnudaginn 24. Febrúar.
Allar sýningar hefjast kl. 20:00.

Random Image

Nýjar fréttir