7.3 C
Selfoss

Vésteinn Hafsteinsson sæmdur gullmerki Umf. Selfoss

Vinsælast

Selfyssingurinn Vésteinn Haf­steinsson hefur fylgt Ung­mennafélagi Selfoss frá fæð­ingu, fyrst sem iðkandi, þjálfari og fyrirmynd íþróttafólks, en síðar sem ráðgjafi og lærifaðir þjálfara hjá félaginu.

Það er ekki heiglum hent að klófesta Véstein, sem búsettur er í Svíþjóð og alltaf með mörg járn í eldinum. Forsvarsmenn Ungmennafélagsins náðu að króa hann af heima hjá Þorvaldi bróður hans milli hátíða í desember sl. Viktor S. Pálsson, formaður Umf. Selfoss, fékk þann heiður að næla gullmerki Umf. Selfoss í barm Vésteins og þakka honum þannig fyrir ævilangt framlag sitt til Ungmennafélagsins en við vitum jafnframt að hann er hvergi nærri hættur að miðla af reynslu sinni til iðkenda og þjálfara á Selfossi.

Nýjar fréttir