-1.5 C
Selfoss

Styrktu Landssamtökin Birtu um 1.750.000 kr.

Vinsælast

Mánudaginn 17. desember sl. var haldinn árlegur opinn gangasöngur hjá Grunnskólanum í Hveragerði sem heppnaðist afar vel. Nemendur og starfsfólk skólans kom saman og söng inn jólin ásamt gestum og gangandi. Á sama tíma var afhentur styrkur sem safnast hafði eftir góðgerðardag skólans sem haldinn var 30. nóvember síðastliðinn en þá seldu nemendur ýmsar afurðir sem unnar höfðu verið í skólanum. Nemendur völdu þetta árið að styrkja Landssamtökin Birtu. Tilgangur samtakanna er að standa fyrir fræðslu og ýmsum viðburðum á landsvísu fyrir syrgjandi foreldra og fjölskyldur þeirra. Þá hafa samtökin einnig staðið fyrir árlegum hvíldardögum fyrir foreldra með endurnærandi hvíld að leiðarljósi.

Gabríela Birta Kristjönudóttir, formaður nemendafélagsins, og Daníel Hrafn Fannarsson, yngsti nemandi skólans (sem varð 6 ára 19. desember), afhentu Helenu Rós Sigmarsdóttur og Elínu Björgu Birgisdóttur frá Birtu táknrænt skjal fyrir millifærslu upp á 1.750.000 krónur til samtakanna. Grunnskólinn í Hveragerði vill þakka öllum þeim sem mættu á opna gangasönginn kærlega fyrir komuna, sem og þeim sem studdu við nemendur í tengslum við góðgerðardaginn. Sérstakar þakkir fá þau fjölmörgu fyrirtæki sem studdu við verkefnið með styrkjum og gjöfum.

Random Image

Nýjar fréttir