1.7 C
Selfoss

Kvenfélög gefa til HSU í Rangárþingi

Vinsælast

Í september síðastliðnum komu konur frá Kvenfélaginu Lóu í Holta- og Landsveit á heilsugæslu Heilbrigðisstofnunar Suðurlands í Rangárþingi. Meðferðis höfðu þær ungbarnaborð fyrir ungbarnavernd, sem notað er í mælingar og vigtun ungbarna, sem þær færðu HSU að gjöf. Heildarverðmæti gjafarinnar er 150.000 krónur.

Í nóvember fékk heilsugæslan í Rangárþingi aðra heimsókn. Að þessu sinni voru það konur frá Kvenfélaginu Unni á Rangárvöllum. Þær gáfu heilsugæslunni CRP tæki að andvirði 100.000 króna.

Kvenfélög hafa ávallt verið tryggur bakhjarl HSU gegnum tíðina og fært stofnunni gjafir sem alltaf eru kærkomin viðbót í starfsemina og koma sér einstaklega vel. Með þessum gjöfum batnar þjónustan til muna. Stofnunin er ákaflega þakklát þessum stuðningi kvenfélagana tveggja og færir þeim innilegustu þakkir.

Konur úr Kvenfélaginu Unni á Rangárvöllum.

Nýjar fréttir