8.4 C
Selfoss
Home Fréttir Bókin Heyannir eftir Þórð í Skógum komin út

Bókin Heyannir eftir Þórð í Skógum komin út

0
Bókin Heyannir eftir Þórð í Skógum komin út

Út er komin bókin Heyannir eftir Þórð Tómason fyrrverandi safnvörð í Skógum undir Eyjafjöllum. Af þessu tilefni efnir Bókaútgáfan Sæmundur til bókagleði í Framheimilinu við Sogamýri í Reykjavík sunnudaginn 9. desember frá klukkan 15:00. Kaffi og konfekt verður á boðstólum fyrir komugesti. Þar verða nýjar bækur Sæmundar boðnar á tilboðsverði og höfundar lesa úr verkum sínum

Safnamaðurinn Þórður Tómasson í Skógum hefur á langri ævi dregið saman óhemjumikinn fróðleik um íslenska menningarsögu í þúsund ár.
Í þessari bók fjallar Þórður um heyskap fyrri alda og fléttar þar saman þjóðfræði og atvinnusögu eins og honum einum er lagið. Hér er lýst verkfærum og vinnubrögðum, heytorfi, reipum og reiðingum, engjaheyskap, veðurboðum og margvíslegum siðum og orðfæri sem tengdist heyönnum. Sagt er frá konum sem gengu að slætti og sömuleiðis frá tækninýjungum eins og „rakstrarkonum“ sem festar voru framan á ljái, að ógleymdum hestasláttuvélunum sem ruddu sér til rúms í upphafi síðustu aldar. Höfundur leitar víða fanga, bæði í rituðum heimildum og hjá fjölmörgum heimildarmönnum, og textinn er kryddaður sögum, vísum og kvæðum.
Lipur texti, lifandi frásögn og ríkulegt myndaval gera bókina Heyannir að eigulegum grip sem er ómissandi öllum þeim sem unna sögulegum fróðleik.