-0.9 C
Selfoss

Fasteignaskattur í Árborg lækkaður

Vinsælast

Á fundi bæjarstjórnar Árborgar sem haldinn var í gær var lögð fram til fyrri umræðu tillaga að fjárhagsáætlun fyrir árið 2019 þar sem gert er ráð fyrir 505 milljóna króna afgangi. Helst ber til tíðinda að gert er ráð fyrir að A-hluti skili 48,5 milljóna króna afgangi og er það í fyrsta sinn frá árinu 2008 sem áætlun fyrir A-hluta er skilað með afgangi, utan þess að gert var ráð fyrir 4 m.kr. afgangi í þeirri áætlun sem lögð var fram fyrir ári síðan.

Samkvæmt áætluninni eru álagningarprósentur skatta á íbúðarhúsnæði lækkaðar umtalsvert til að mæta þeirri miklu hækkun sem orðið hefur á fasteignamati í sveitarfélaginu. Þannig lækkar fasteignaskattur úr 0,325% í 0,275%, sem er 15,4% lækkun á skattinum.

Skuldaviðmið skv. sveitarstjórnarlögum, eins og það hefur verið reiknað á undanförnum árum, nær nýju lágmarki árið 2019 m.v. framlagða áætlun og verður 122,7%. Breyting hefur þó orðið á lögum um þetta viðmið og reiknast það 106,7% samkvæmt nýjum reglum.

Í tilkynningu segir að bættur rekstur muni gera kleift að bæta þjónustu við íbúa og auka þannig velsæld og ánægju í sveitarfélaginu. Myndarlegur rekstrarafgangur sé einnig nauðsynlegur svo sveitarfélagið hafi aukna getu til fjárfestinga í nauðsynlegum innviðum á borð við leikskóla, grunnskóla, íþróttahús og fráveitu – sem sé mikilvægt þegar fjölgun íbúa er eins hröð og nú gerist í Árborg.

Fjárfest í innviðum

Sveitarfélagið Árborg mun fjárfesta í innviðum fyrir rúmlega 10 milljarða á næstu fjórum árum. Uppbygging íbúabyggðar í Bjarkarstykki, með um 650 íbúðum og nýjum grunnskóla, uppbygging íþróttamannvirkja við Engjaveg, nýr leikskóli og hreinsistöð fráveitu, verða stærstu einstöku fjárfestingarnar á tímabilinu.

Aldrei áður í sögu sveitarfélagsins hefur verið fjárfest jafn mikið í samfélagslegum innviðum og gert verður á næstu fjórum árum. Til að mæta uppsafnaðri fjárfestingaþörf síðustu ára er mikil fjárfesting framundan á næstu tveimur árum en minnkar á síðari hluta tímabilsins. Meðal annars verður aukinn kraftur settur í orku- og vatnsöflun.

Random Image

Nýjar fréttir