3.4 C
Selfoss

Forritun fyrir krakka á Bókasafninu á Selfossi

Vinsælast

Laugardaginn 17. nóvember nk. kl. 11:30–13:30 býður Bókasafn Árborgar á Selfossi krökkum á aldrinum 8 til 12 ára að koma og taka þátt í Micro:bit tækjaforritun. Námskeiðið er unnið í samvinnu við https://www.facebook.com/SkemaEducation/ og er sambærilegt við makey makey forritunarnámskeiðið sem boðið var uppá í tengslum við Vor í Árborg í apríl sl.

Á námskeiðinu munu þátttakendur læra, með einföldu kubbaforritunarmáli, að láta Micro:bit tækið bregðast við áreiti, m.a. með því að hrista og smella á takka á tækinu. Hægt er að tengja Micro:bit við iPad og forrita það.

Hér býðst frábært tækifæri fyrir alla krakka á aldrinum 8–12 ára að fikta í forritun og læra um leið spennandi tækni og hvað hægt er að skapa með henni. Þátttaka er ókeypis og allir krakkar á aldrinum 8 til 12 ára eru velkomnir.

Nýjar fréttir