4.9 C
Selfoss
Home Fréttir Nemendur Grunnskólans í Hveragerði gera samning við bæjarfélagið

Nemendur Grunnskólans í Hveragerði gera samning við bæjarfélagið

0
Nemendur Grunnskólans í Hveragerði gera samning við bæjarfélagið
Mynd: Hveragerðisbær

Áratuga hefð er fyrir samningum Hveragerðisbæjar við nemendur í 7. og 10. bekk og hafa ungmennin fengið greiðslu fyrir, sem rennur í bekkjarsjóð sem síðan er nýttur til skemmtilegrar ferðar að vori.

Samningar um verkefni sem nemendur í 7. og 10. bekk hafa tekið að sér fyrir Hveragerðisbæ voru undirritaðir nýverið. Bæjarstjóri hitti nemendur í báðum bekkjum, ræddi við þá um verkefnin sem þau hafa tekið að sér, þakkaði þeim fyrir og gerði grein fyrir mikilvægi þeirra starfa sem þau hafa nú tekið að sér.

Krakkarnir í 7. bekk sjá um að halda bænum snyrtilegum með því að fara mánaðarlega og týna upp rusl sem verður á vegi þeirra í bæjarfélaginu. Einnig sjá þau um losun á ílátum fyrir endurvinnanleg efni innan skólans.

Nemendur 10. bekkjar taka að sér að aðstoða í mötuneyti og í frímúnútum auk þess sem þau koma að gæslu á skólaskemmtunum.

Áratuga hefð er fyrir samningum í þessa veru við nemendur í 7. og 10. bekk og hafa ungmennin fengið greiðslu fyrir sem rennur í bekkjarsjóð sem síðan er nýttur til skemmtilegrar ferðar að vori.