2.8 C
Selfoss

Þrír Íslandsmeistarar í víðavangshlaupum

Vinsælast

Víðavangshlaup Íslands eða Íslandsmeistaramót í víðavangshlaupum fór fram í Laugardal í Reykjavík 20. októ­ber sl. Ræst var á tjaldsvæðinu og hlaupið eftir göngustígum og grasi um tjaldsvæðið og Þvotta­laugarnar í Laugardalnum.

Fjórir keppendur af sam­bandssvæði HSK tóku þátt og unnu öll til verðlauna. Kristinn Þór Kristinsson Umf. Selfoss varð Íslandsmeistari í karla­flokki og þá unnu þrjú systkin frá Garpi til verðlauna. Sveinn Skúli Jónsson var meistari í flokki 13–14 ára stráka, Svan­borg Jónsdóttir vann í flokki stúlkna 12 ára og yngri og Sæmundur Ingi Jónsson varð annar í flokki stráka 12 ára og yngri.

Nýjar fréttir