2.8 C
Selfoss

Gyða Dögg Íslandsmeistari og akstursíþróttakona ársins

Vinsælast

Iðkendur mótokrossdeildar Selfoss voru í aðal­hlut­verki á lokahófi Mótorhjóla- og snjósleðasambands Íslands (MSÍ) um seinustu helgi.

Hæst bar árangur Gyðu Dagg­ar Heiðarsdóttur sem varð Íslands­meistari í Mx kvenna sem og í enduro þar sem hún keppti í fyrsta skipti í sumar. Hún var valin akstursíþróttakona MSÍ á lokahófinu.

Heiðar Örn Sverrisson varð Íslandsmeistari í Mx 40+ sem og í tvímenningi í enduro ásamt Atla Má Guðnasyni. Elmar Darri Vilhelmsson varð í öðru sæti í Mx2. Í 85 cc flokki varð Alexand­er Adam Kuc í öðru sæti og Eric Máni Guðmunds­son í þriðja sæti. Þá voru Bríet Anna Heiðarsdóttir og Eric Máni Guð­mundsson valin nýlið­ar árs­ins 2018 hjá MSÍ sem er mikil viðurkenning á áhuga þeirra og framförum í íþróttinni en ekki síð­ur mikil viðurkenning á öflugu barna- og unglinga­starfi deildar­innar. Þess má að lokum geta að þjálfarar deildar­innar í sumar voru Heiðar Örn og Gyða Dögg.

F.v. Eric Máni, Elmar Darri, Heiðar Örn, Alexander Adam, Gyða Dögg og Bríet Anna. Ljósm.: Umf. Selfoss/Gissur.

Nýjar fréttir