-0.5 C
Selfoss

Nýtt og gamalt og allt skemmtilegt á bókasafninu

Vinsælast

Sú nýbreytni verður tekin upp í haust á Bókasafni Árborgar Selfossi, að bjóða dagforeldra, sem og foreldra sem eru heima og börnin þeirra, sérstaklega velkomin á föstudagsmorgnum frá kl. 9 til kl. 11.

Bókasafnið er notalegur staður til að hittast og spjalla saman, fá sér kaffi og leyfa börnunum að hittast innan dyra í notalegu umhverfi þar sem þau geta skoðað bækur fyrir alla aldurshópa og leikið sér með dótið okkar. Þar er hægt að koma og hitta fólk, kíkja í blöðin og fylgjast með sýningunum í Listagjánni og njóta samverunnar.

Við höfðum ekki hugsað okkur að hafa neina sérstaka dagskrá en ef einhverjir úr hópnum vilja nota tækifærið og kynna áhugavert efni fyrir kollegum sínum þá er það velkomið.

Engar skráningar eða mætingaskylda er og að sjálfsögðu ekkert gjald tekið fyrir þetta. Allir bara hjartanlega velkomnir.

Handavinnukvöldin eru að byrja aftur og verða með svipuðu sniði og áður. Þar eru allir velkomnir sem eru að prjóna, hekla eða með aðrar hannyrðir til að koma og eiga notalega kvöldstund og spjall. Ef einhver lumar á skemmtilegum eða áhugaverðum upplýsingum til að deila með hópnum þá er til tjald og skjávarpi og það verður heitt á könnunni. Fyrsti fundur er í kvöld, fimmtudaginn 18. október frá kl. 19:30–21:30.

Leshringur bókasafnsins er öllum opinn og hittist annan fimmtudag í hverjum mánuði. Næsti fundur verður 8. nóvember kl. 17:30 í lesstofu safnsins. Þá ræðum við skáldsögur Bjarna Bjarnasonar rithöfundar (gott er að vera búin að lesa einhverja). Bjarni er að gefa út nýja skáldsögu núna í nóvember, Læknishúsið, sem mun fjalla um veru hans og Katrínar konu hans í Læknishúsinu á Eyrarbakka, bókin er fjölskyldu-ættar-spennu- og draugasaga. Allir eru velkomnir í leshringinn, engin skráning nauðsynleg.

Svo bendum við fólki á að „læka“ við bókasafnið þannig að fréttir af starfinu og viðburðum framundan berist ykkur örugglega ölllum.

Heiðrún Dóra Eyvindardóttir, forstöðumaður Bókasafns Árborgar.

Nýjar fréttir