-3.5 C
Selfoss

Ævintýraferð fjölskyldunnar á Suðurland í haustfríinu

Vinsælast

Suðurland býður upp á spennandi upplifun og ævintýralega skemmtun fyrir alla fjölskylduna í haustfríinu. Úr mörgu er að velja í afþreyingu hvort sem það er gönguferð um sögustaði eða svartar fjörur, hestaferð með heimafólki, fræðsla í gróðurhúsi, hellaferðir eða heimsókn í sundlaugar á svæðinu. Söfnin eru fjölmörg og víða áhugaverðar sýningar í boði fyrir alla fjölskylduna. Með sanni má segja að Suðurland sé ævintýrakista sem geymir ógleymanlega upplifun hvort sem farið er í ævintýraferð um Kötlu jarðvang, sem endar með heimsókn á ævintýraeyjuna í suðri, spennandi ferð inn í ævintýraríkið undir Vatnajökli eða farið í ævintýralega afþreyingu á Gullna svæðinu.

Fjölbreytt úrval er af veitingum og gistingu á Suðurlandi. Góðir veitingastaðir eru um allt svæðið þar sem víða er lögð mikil áhersla á að bjóða afurðir af svæðinu og nýta matvæli úr heimabyggð. Gisting er fjölbreytt og auðvelt er að finna gistingu fyrir alla fjölskylduna s.s. íbúðir, gistihús, bændagistingu, hótel o.fl.

Frábær skemmtun er í boði fyrir alla fjölskylduna og auðvelt er að finna ævintýralega afþreyingu. Ferðaþjónustuaðilar verða með ýmis tilboð með sérstakri áherslu á fjölskylduna í haustfríinu, nánari upplýsingar um tilboðin og hugmyndir af því sem fjölskyldan getur notið og gert saman á Suðurlandi er á heimasíðu Markaðsstofu Suðurlands, south.is Ekki er spurning hvort, heldur hvert verður haldið í vetrarfríinu.

Allar nánari upplýsingar má finna á viðburðadagatali south www.south.is/vidburdir.

Myndir: Markaðsstofa Suðurlands.

Random Image

Nýjar fréttir