4.2 C
Selfoss

Friðlýsing Reykjadals undirbúin

Vinsælast

Umhverfisstofnun hefur óskað eftir afstöðu Hveragerðisbæjar til mögulegrar friðlýsingar Reykjadals. Jafnframt hefur stofnunin óskað eftir því að bæjarstjórn tilnefni aðila í samráðshóp um friðlýsingu svæðisins sem hefur verið settur á stofn.

Á fundi bæjarráðs Hveragerðis þann 4. október sl. var eftirfarandi samþykkt samhljóða:
„Bæjarráð tekur jákvætt í erindið en ljóst er að umferð um Reykjadal hefur aukist gríðarlega með tilheyrandi álagi á umhverfið. Mikilvægt er að friðlýsing verði unnin í góðu samstarfi við landeiganda, sveitarfélögin Hveragerði og Ölfus og aðra hagaðila og að hagsmunir náttúrunnar og þeirra sem hennar vilja njóta verði hafðir í öndvegi.“

Á sama fundi fól bæjarráð Eyþóri H. Ólafssyni, forseta bæjarstjórnar að sitja samráðshópi er undirbúi mögulega friðlýsingu.

Nýjar fréttir