3.4 C
Selfoss

Keppendur frá 15 löndum skráðir í utanvegahlaupið Hengill Ultra

Vinsælast

Metskráning er í utanvegahlaupið Hengil Ultra sem haldið verður í Hveragerði 8. september nk. Keppendur koma m.a. alla leið frá Nýja-Sjálandi til að taka þátt í keppninni í ár. Fyrir utan metfjölda þátttakenda þá eru keppendur frá 15 þjóðlöndum skráðir til leiks. Þeir koma frá Bandaríkjunum, Kanada, Nýja-Sjálandi, Danmörku, Pólandi, Frakklandi, Spáni, Sviss, Bretlandi, Þýskalandi, Austurríki, Tékklandi, Færeyjum og auðvitað Íslandi.

Hengill Ultra er lengsta utanvegahlaup á Íslandi og býður þó upp á sex mismunandi keppnisleiðir, 100 km, 50 km, 25 km, 10 km og svo 5 km. Einnig er fjórum sinnum 25 km boðhlaup sem er nýjung í mótinu í ár. Þannig er 25 kílómetra braut Hengils Ultra í sjálfu hlaupinu í gegnum Reykjadalinn, þá fallegu náttúrperlu og upp að Ölkelduhnjúk og í kringum hann. Sú hlaupaleið segja gárungarnir að sé eina utanvegahlaupaleiðin í heiminum með innbyggðum heitum pottum.

Hlaupaleiðir
Byrjunarreitur allra vegalengda og mótsstjórn verður við veitingastaðinn Skyrgerðina í hjarta Hveragerðis. Gjafapoki með óvæntum glaðningi frá samstarfsaðilum er innifalinn í skráningu fyrir alla þá sem skrá sig fyrir miðnætti sunnudaginn 2. september. Hengill Ultra er síðasta stóra hlaup sumarsins og má því segja að þetta verði sannkölluð uppskeruhátíð íslenskra hlaupara.

Margt í boði
Eftir keppni er öllum keppendum boðið í sveittan borgara með blóði, svita og tárum á „The Finish Line Burger Joint“ sem er ein besta POP-UP borgarabúllan á landinu. Öllum keppendum er boðið í sund og chill í lystigarðinum í Hveragerði. Verðlaunaafhending og grillveisla fyrir keppendur og aðstandendur verður kl. 17:00. Tímatökubúnaður verður notaður og allir hlauparar hlaupa með tímatökuflögur. Þá er líka dregið úr glæsilegum brautarvinningum í verðlaunaafhendingunni. Þannig að allir fá eitthvað til minningar um þátttökuna í þessum mikla afrekshlaupi.

Slagorð hlaupsins er „Allir hlaupa, allir vinna og allir velkomnir“. Nánari upplýsingar um hlaupið og skráning er á síðunni hengillultra.is.

Random Image

Nýjar fréttir