0 C
Selfoss

Byggt við Grunnskólann í Hveragerði á næsta ári

Vinsælast

Áætlað er að byggja við Grunnskólann í Hveragerði 2019. Hönnun viðbyggingarinnar mun hefjast innan tíðar. Bæjarráð hefur samþykkt að dr. Maggi Jónsson, arkitekt og aðalhönnuður viðbygginga við Grunnskólann í Hveragerði, verði fenginn til verksins.

Einnig var samþykkt að á hönnunarstigi hafi arkitekt samráð við starfshóp skipaðan af: bæjarstjóra, byggingafulltrúa, skólastjóra, fulltrúi kennara og formanni fræðslunefndar.

Gert er ráð fyrir að ný viðbygging rísi við suðurenda nýja anddyrisins. Við hönnunina skal tekið mið af því að stofurnar sem verða til geti nýst sem mynd- og handmenntastofur þegar fram líða stundir og aðrar viðbyggingar við skólann verða að veruleika eins og gert hefur verið ráð fyrir. Í viðbyggingunni skal reynt að koma fyrir eins mörgum kennslustofum og unnt er og að góð skilyrði til kennslu verði höfð í fyrirrúmi.

Samkvæmt þriggja ára áætlun er gert ráð fyrir að framkvæmdir við viðbygginguna hefjist árið 2019.

Nýjar fréttir