-1.5 C
Selfoss

Sumartónleikar í Skálholti

Vinsælast

Sumartónleikar í Skálholti halda göngu sinni áfram komandi helgi og kennir ýmissa grasa í dagskránni. Þetta er þriðja og næstsíðasta tónleikahelgin í tónleikaröð sumarsins. Auk tónleikanna eru haldnir fyrirlestrar alla laugardaga klukkan 13 í Skálholtsskóla. Fyrirlesturinn sem haldinn er 28. júlí næstkomandi nefnist Tónlist Bachs á ýmsa kanta. Það er Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir sellóleikari sem ræðir um margbrotin meistaratök tónskáldsins Johanns Sebastians Bachs á sviði tónlistarinnar.

Franskt barrokk á föstudagskvöldi

Föstudaginn 27. júlí klukkan 20 halda þeir Vladimir Waltham sellóleikari og Brice Sailly semballeikari tónleika í Skálholtskirkju sem bera yfirskriftina Dásemdir einverunnar. Þeir eru báðir Frakkar. Vladimir starfar í Þýskalandi með búsetu í Berlín en Brice í París.

Verkin sem þeir flytja eru eftir  François Couperin, Jean-Baptiste Barrière, Jean-Baptiste Canavas og Michel Corrette.

Tvenna á laugardegi

Á laugardeginum er blásið til tveggja tónleika. Annarsvegar er það tónlist eftir Bach og hinsvegar tónlist frá klassíska tímabilinu.

Bach í Skálholti.

Í þau fjörtíu og þrjú ár sem Sumartónleikar í Skálholti hafa starfað, hefur tónlist eftir Bach verið áberandi. Nú hefur hópurinn Corpo di Strumenti undir forystu Steinunnar Arnbjargar Stefánsdóttur sett saman efnisskrá fyrir Sumartónleikana sem hún nefnir „Úr smiðju Bachs“. Á þessum tónleikum mætast Corpo di Strumenti, Barokkbandið Brák og Eyjólfur Eyjólfsson tenór. Listafólkið mun flytja nokkra gullmola úr smiðju meistarans.  Þessir tónleikar verða haldnir á laugardag þann 28. júlí klukkan 14.

Tónlist frá klassíska tímabilinu

Laugardaginn 28. júlí klukkan 16 kemur Barokkbandið Brák fram með tónlist frá klassíska tímabilinu. Þar verða leiknir kvartettar eftir Boccherini, Haydn og Mozart.

Efnisskráin verður svo endurtekin á sunnudaginn 29. Júlí klukkan 14. Þeim sem vilja kynna sér verkefnið betur er bent á vefslóðina www.sumartonleikar.is.

Random Image

Nýjar fréttir