1.7 C
Selfoss

Sjö nemendur tóku sveinspróf í Hamri

Vinsælast

Um 80 nemendur um allt land tóku sveinspróf í húsasmíði í byrjun júní. Sjö nemendur úr FSu þreyttu prófið sem var haldið fyrir þá í Hamri, við frábærar aðstæður í nýju og glæsilegu verknámshúsi FSu. Strákar stóðu sig vel og náðu allir prófinu sem var 18 klst verklegt og 2 klst bóklegt próf. Prófið byrjaði á föstudagsmorgni og lauk kl. 13 á sunnudegi. Viðfangsefnið þetta vorið var snúinn stigi, sem sjá má á meðfylgjandi mynd. Fyrst þarf að teikna stigann upp og því næst smíða með handverkfærum eingöngu. Engar skrúfur eru notaðar til að halda stiganum saman, heldur verður allt að falla það vel að hann tolli saman.

Nýjar fréttir