1.9 C
Selfoss
Home Fréttir Lesum í allt sumar

Lesum í allt sumar

0
Lesum í allt sumar

Sumarið er tími samverunnar, útivistar og leikja en það er líka mikilvægt að minna unga fólkið á að lesa. Rannsóknir sýna að ef barn les ekkert yfir sumartímann getur orðið allt að þriggja mánaða afturför á lestrarfærni þess í fríinu. Góðu fréttirnar eru þó að það þarf ekki mikið til að krakkar viðhaldi færninni eða taki jafnvel framförum í lestri. Til þess nægir að lesa aðeins 4–5 bækur yfir sumarið eða að jafnaði tvisvar til þrisvar í viku í u.þ.b. 15 mínútur í senn.

Sem hvatningu fyrir lesendur á grunnskólaaldri skipuleggur Mennta- og menningarmálaráðuneytið sumarlestrarleik með góðri hjálp frá Menntamálastofnun, KSÍ, samtökunum Heimili og skóli, SFA og íslenska karlalandsliðinu í fótbolta. Sú lestrarhvatning er framhald Söguboltans, verkefnis sem skipulagt var í tengslum við þátttöku karlalandsliðsins í heimsmeistaramótinu í júní en þar voru tvinnaðar saman tvær ástríður landsmanna – fótbolta og bókmenntir. Söguboltaþættina má finna á vef KrakkaRÚV.

Það er auðvelt að taka þátt í Sögubolta-leiknum. Aðeins þarf að leysa verkefnin á þátttökublaðinu og senda mynd af því útfylltu til Menntamálastofnunar, á netfangið leikur@mms.is fyrir 15. ágúst nk. Þátttökublaðið er aðgengilegt á heimasíðu Menntamálastofnunar, mms.is/soguboltinn.