0.6 C
Selfoss
Home Fréttir Ásta Stefánsdóttir ráðin sveitarstjóri Bláskógabyggðar

Ásta Stefánsdóttir ráðin sveitarstjóri Bláskógabyggðar

0
Ásta Stefánsdóttir ráðin sveitarstjóri Bláskógabyggðar
Ásta Stefánsdóttir.

Á fundi sveitarstjórnar Bláskógabyggðar í gær var samþykkt samhljóða að ráða Ástu Stefánsdóttur sem sveitarstjóra Bláskógabyggðar. Ásta var valin úr hópi 24 umsækjenda en Hagvangur sá um auglýsinga- og ráðningarferlið.

Ásta sem er lögfræðingur að mennt hefur undanfarin átta ár gengt starfi framkvæmdastjóra Sveitarfélagsins Árborgar.