8.9 C
Selfoss
Home Fréttir Fræðsluefni um Skálholti fyrir grunnskóla

Fræðsluefni um Skálholti fyrir grunnskóla

0
Fræðsluefni um Skálholti fyrir grunnskóla

Skálholt hefur ásamt ellefu söfnum og sýningum á Suðurlandi hannað fræðsluefni fyrir grunnskólanemendur með verkefnastyrk frá SASS.

Framlag Skálholts er hefti sem inniheldur ratleik, sem nefnist „Ferðalag í tíma og rúmi – Aftur í tímann og og ofaní jörð í Skálholti“. Grunnskólabörn í 5.–7. bekk eru sérstaklega velkomin í Skálholt til að skoða minjar um sögu Íslands á miðöldum.

Saga Skálholts nær yfir stóran hluta af Íslandssögunni. Staðurinn var í 750 ár einskonar höfuðstaður Íslendinga utan alþingistímans. Þar var stjórnsýsla, skólahald og fræðasetur löngum fyrir 3/4 hluta landsins.

Hugmyndin með fræðsluefninu er að skólabörn fái tækifæri til að „stíga niður í jörðina og aftur í tímann“ í Skálholti, með því að fara niður í safnið í kjallaranum og út um göngin fornu og ferðast þannig aftur í tímann og kynnast hluta af þessari merku sögu.

Fræðsluefnið er þverfaglegt og hefur skírskotanir í ólíkar námsgreinar; Íslandssögu, trúarbragafræði, list- og verkgreinar, upplýsinga- og tæknimennt og náttúrugreinar með „fornleifauppgreftri“ í Skálholti og hvernig menn lesa í aldur fornminja út frá öskulögum í jörð. Börnin kynnast Páli biskupi Jónssýni sem var biskup í Skálholti 1195–1211. Hann er eini nafnkunni Íslenndingur miðalda hvers jarðneskar leifar hafa fundist, en steinkista hans fannst í Skálholti 21. ágúst 1954. Á heimasíðu Skálholts má nú finna hljóðskrá þar sem er bein útvarpssending frá fundinum. Þá verður fjallað um listmun, útskorinn biskupstaf úr rostungstönn, sem var að öllum líkindum gerður af fyrstu nafngreindu listakonu Íslandssögunnar, Margréti hinni högu Jónsdóttir, sem bjó í Skálholti á þessum tíma. Einnig hefur verið búið til þrívíddarforritið Unity 3D, þar sem hægt er að fara úr stað í Skálholti, skoða og fræðast um göngin og kistu Páls og skoða það 360°.

Hægt verður að ferðast um söguna á heimasíðunni skalholt.is, en einnig og ekki síður með því að koma í heimsókn og vinna verkefni sem er afurð styrksins.

Skálholt vill jafnframt þakka Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga kærlega fyrir stuðninginn.