8.4 C
Selfoss

Fyrsta skemmtiferðaskipið kemur í Þorlákshöfn

Vinsælast

Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins er væntanlegt til Þorláshafnar rétt fyrir hádegi í dag. Á heimasíðu sveitarfélagsins kemur fram að mikil vinna hafi farið í það að fá skemmtiferðaskip til að leggja að í Þorlákshöfn. Skipið sem búið var að bóka í sumar hafi breytt sínum áætlunum og afbókað og því ekkert annað að gera en að halda áfram að vinna að því að fá bókanir.

Seint í fyrradag var ljóst að skipið Ocean Diamond þurfti að breyta sínum ferðaáætlunum og mun því leggja að í Þorlákshöfn í dag fimmtudaginn 14. júní kl. 11.30.

Þar sem um er að ræða fyrsta skipið eru allir íbúar Þorlákshafnar sem geta hvattir til að kíkja niður á höfn um 11.30 og taka vel á móti gestunum. Þetta eru um 200 farþegar og um 100 manns í áhöfn. Flestir farþegar fara í ferð en einhverjir verða kyrrir í bænum og áhöfnin verður um borð.
Á heimasíðu sveitarfélagsins segir að mikilvægt sé að farþegar upplifi að þeir séu velkomnir og að íbúar sýni gestum vinskap og jafnvel spjalli við þá sem þeir rekast á.

Nýjar fréttir