-0.6 C
Selfoss

Önnur dagleið pílagrímagöngunnar

Vinsælast

Önnur dagleið pílagrímagöngunnar „Frá Strandarkirkju heim í Skálholt“ verður farin sunnudaginn 10. júní nk. Lagt verður af stað með rútu kl. 9:30 frá Eyrarbakkakirkju.

Gengið er frá Þorlákskirkju um 14 km leið með Nirði, guði hafsins og ósins, sem leið liggur austur í Eyrarbakkakirkju. Þátttakendur mæta því á áfangastað göngu og skilja bíla eftir þar. Rúta flytur síðan hópinn á upphafsstað göngunnar og svo er gengið til áfangastaðar. Ganga þarf frá greiðslu fyrir kl. 15 föstudag fyrir ferð. Hver ferð kostar 3.000 kr. fyrir manninn en verður lækkað eftir því sem fleiri skrá sig. Gjaldið er fyrst og fremst fyrir rútubílinn. Fólk fer alfarið á eigin ábyrgð í þessa göngu, að öllu leyti.

Göngulag pílagrímsins er ganga inn á við, inn í sálina og hún er því helsti samferðarmaður pílagríma. Eitt er að fara af stað og ganga, en annað er að ganga í vitunarvakningu pílagrímsins og að valdefla hinn nýja mann sem fer á fætur hvern dag sem lifað er. Þessar ferðir gætu því komið að gagni við að temja sér breytt hugarfar og til að undirbúa sig undir pílagrímagöngur erlendis. Helgihald, kyrrð, samtal og að ganga með sjálfum sér, marka pílagrímagöngurnar, enda þarf hver lengst með sjálfum sér að fara. Allir eru velkomnir til þátttöku.

Skipuleggjendur á þessu þriðja ári göngunnar eru Suðurprófastsdæmi og Skálholt. Umsjónarmaður er Axel Á. Njarðvík héraðsprestur og veitir hann frekari upplýsingar í síma 856 1574 eða axel.arnason@kirkjan.is. Skráning og frekari upplýsingar er að finna á www.pilagrimagongur.is.

Random Image

Nýjar fréttir