1.9 C
Selfoss

Z-listinn, Sól í Skaftárhreppi, býður fram í Skaftárhreppi

Vinsælast

Sól í Skaftárhreppi – Z-listinn, óháð framboð hefur áhuga á að byggja upp gott samfélag í Skaftárhreppi. Framboðið leggur áherslu á að jákvæðni, samstaða, opin umræða og skoðanaskipti sé forsenda jákvæðs samfélags. Hver íbúi er mikilvægur og nýta þarf styrkleika allra til að vinna saman að  úrlausn þeirra verkefna sem fyrir liggja.

Z-listinn, Sól í Skaftárhreppi, hefur skýra framtíðarsýn. Okkar markmið er að Skaftárhreppur sé fjölskylduvænt samfélag með öfluga þjónustu við íbúana. Við leggjum mikla áherslu á að viðhalda stöðugleika í fjármálum. Fjárhagsleg staða sveitarfélagsins er góð sem er fagnaðarefni sem ber að þakka og nýta til uppbyggingar.

Okkur í Sól í Skaftárhreppi er mjög annt um náttúruna og viljum að hún fái ávallt að njóta vafans. Við viljum ekki stórar vatnsaflsvirkjanir með miðlunarlónum heldur vernda þær náttúruauðlindir sem okkur voru gefnar og skila þeim til næstu kynslóðar, jafn góðum eða betri en við tókum við þeim. Það sem við gerum í dag hefur áhrif á framtíðina og því er sjálfbærni höfð að leiðarljósi í öllu okkar starfi.

  1. Heiða Guðný Ásgeirsdóttir, sauðfjárbóndi, Ljótarstöðum
    2. Arndís Jóhanna Harðardóttir, bóndi, Efri-Ey I
    3. Jóna Björk Jónsdóttir, líffræðingur, Mörtungu I
    4. Gústaf B. Pálsson, verktaki, Hörgsdal
    5. Kristbjörg Hilmarsdóttir, bóndi og ferðaþj.bóndi, Þykkvabæjarklaustri 2
    6. Rannveig Ólafsdóttir, náttúrufræðingur og bóndi, Mörtungu II
    7. Lilja Magnúsdóttir, íslenskufræðingur, Kirkjubæ I
    8. Þórdís Bjarnleifsdóttir, bóndi, Melhól 2
    9. Sigurður Arnar Sverrisson, bifvélavirkjameistari, Þykkvabæjarklaustri 2
    10. Hilmar Gunnarsson, ellilífeyrisþegi, Skerjavöllum 6

Nýjar fréttir