7.3 C
Selfoss

Þjálfaraskipti hjá körfuknattleiksdeild Þórs í vor

Vinsælast

Baldur Þór Ragnarsson mun taka við sem þjálfari körfuknattleiksliðs Þórs í Þorlákshöfn í vor. Einar Árni Jóhannsson lætur þá af störfum hjá félaginu en hann kom til starfa vorið 2015 og hefur stýrt liðinu undanfarin þrjú keppnistímabil. Baldur Þór Ragnarsson, sem verið hefur aðstoðarþjálfari Einars Árna síðastliðin þrjú ár, gerði þriggja ára samning við deildina. Baldur Þór er gegnheill Þórsari og var fyrirliði liðsins til margra ára og þekkir vel innviði deildarinnar.

„Það hefur verið frábært að starfa í Þorlákshöfn og það var mjög erfið ákvörðun að afþakka framlengingu á þriggja ára samningnum sem rennur út núna í vor. Ég tilkynnti forráðamönnum Þórs mína ákvörðun um síðustu mánaðarmót til að félagið gæti farið að huga að framhaldi. Mér hefur liðið afskaplega vel hjá Þór þar sem aðstæður eru frábærar og fólkið í kringum félagið einstakt. Við Baldur Þór höfum átt frábært samstarf og hann hefur haft stórt hlutverk í teyminu þessi þrjú ár sem við höfum unnið saman og ég er ánægður með að hann fái að halda áfram að byggja ofan á störf okkar og treysti ég honum til góðra verka. Hvað mig sjálfan varðar þá bý ég 80 km frá íþróttahúsinu í Þorlákshöfn og tveir tímar í akstri á dag rífa aðeins í til lengdar. Tíminn verður að leiða í ljós hvert næsta verkefni verður, en ég ætla að njóta lokasprettsins með strákunum”, sagði Einar Árni.

Körfuknattleiksdeild Þórs þakkar Einari Árna fyrir frábært og óeigingjarnt starf fyrir klúbbinn á facebooksíðu deildarinnar. Þar segir að hjá honum hafi fagmennska skynið í gegn, ástríða fyrir sportinu og þrautseigja, en ekki síst skilji hann hann eftir frábært starf sem klúbburinn getur tekið með sér inn í framtíðina.

Baldur Þór Ragnarsson tekur nú við sínu fyrsta aðalþjálfarastarfi í meistaraflokki en hann hefur öðlast mikla reynslu á undanförnum árum. Auk aðstoðarþjálfarastarfsins hjá Þór hefur hann verið aðstoðarþjálfari U20 ára karlalandsliðsins sl. þrjú ár. Hann var auk þess aðstoðarþjálfari í U16 ára drengjalandsliðinu sl. sumar og starfar einnig sem styrktarþjálfari A landsliðs karla. Baldur er auk þess yfirþjálfari yngri flokka í Þorlákshöfn og mun halda því starfi áfram. Á síðu félagsins segir að áfram verði unnið að uppbyggingu deildarinnar og að Baldri sé treyst til góðra verka þar eins og áður. Undanfarin ár hefur iðkendafjöldi í deildinni aukist og horfa Þórsarar til þess að vera áfram í fremstu röð.

Nýjar fréttir