-5 C
Selfoss

Bjarni Bjarnason íþróttamaður Bláskógabyggðar

Vinsælast

Knapinn Bjarni Bjarnason frá Þóroddsstöðum var út­nefndur íþróttamaður Blá­skógabyggðar 2017 á hófi sem fram fór í íþróttahúsinu á Laug­ar­vatni í síðustu viku. Bjarni náði góð­um árangri á árinu og hlaut titil­inn í þriðja sinn.

Æskulýðsnefnd Bláskógabyggðar bauð síðastliðinn fimmtudag til hófs til heiðurs íþróttamönnum sveitarfélagsins. Hófið var að þessu sinni haldið í íþróttahúsinu á Laugarvatni og þótti það vel við hæfi þar sem Bláskógabyggð tók við rekstri þess á árinu 2017. Þar fengu tvær hlaupakonur úr Laugdælum verðlaun fyrir góðan árangur á árinu 2017 þær Agnes Erlingsdóttir og Lára Björk Pétursdóttir en báðar urðu þær bikarmeistarar í 1500 m hlaupi, Agnes í fullorðinsflokki og Lára Björk í Bikarkeppni 15 ára og yngri.

Skólahreystiliði Bláskógaskólanna sem fengu viðurkenningu fyrir góðan árangur.

Að þessu sinni ákvað Æskulýðsnefnd að veita sameiginlegu liði skóla Bláskógaskóla í Reykholti og á Laugarvatni sérstaka viðurkenningu fyrir góðan árangur í Skólahreysti – Suðurlandsriðli á árinu 2017 en liðið varð i 3. sæti í keppninni. Þau sem skipuðu liðið eru Anthony Karl Flores, Sölvi Freyr Jónasson, Lára Björk Pétursdóttir og Jóna Kolbrún Helgadóttir. Þau eru öll miklir íþróttamenn, með bakgrunn úr hinum ýmsu íþróttagreinum.

Tveir knapar voru tilnefnir til íþróttamanns ársins, Bjarni Bjarnason, ættaður frá Þóroddsstöðum, en hann er félagi í Hestamannafélaginu Trausta og Rósa Kristín Jóhannesdóttir frá Brekku sem keppir fyrir Hestamannafélagið Loga.

Bjarni hlaut tiltilinn í ár en þetta er í þriðja sinn sem hann er valinn íþróttamaður Bláskógabyggðar. Árangur Bjarna á árinu 2017 náði ekki þeim hæðum sem á fyrri árum enda kannski ekki hægt að fara fram á heimsmet á ári hverju. Bjarni átti samt farsælan feril í skeiðkeppni á árinu varð m.a. í 3. sæti í 100 m skeiði á Íslandsmótinu og í 1. sæti í 250 m skeiði á Suðurlandsmótinu.

Nýjar fréttir