0.3 C
Selfoss

Matarveisla og bændafundur á Hellu

Vinsælast

Lambakjöt er verðmæt vara

Í samstarfi við IKEA, Kjötkompaníið, Markaðsráð kindakjöts, Bændablaðið og sauðfjárbændur á Suðurlandi blásum við bændum bjartsýni í brjóst á fundi í Íþróttahúsinu á Hellu laugardaginn 6. janúar 2018 kl. 10.30. Fundarefnið er markaðssetning á lambakjöti og fjölbreytt tækifæri sem bíða íslensks landbúnaðar handan við hornið. Að loknum erindum verður fundargestum boðið í mat með léttum veitingum, öllum að kostnaðarlausu. Bændur eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Nauðsynlegt er að skrá sig á fundinn á vef Bændablaðsins, bbl.is til að undirbúa nægan mat og veitingar.

10.000 manns njóta veitinga í IKEA

Þórarinn Ævarsson framkvæmdastjóri IKEA mun fjalla um magnaðan árangur í sölu landbúnaðarafurða í IKEA versluninni á Íslandi. Þar eru allt upp í 10 þúsund manns á dag sem njóta veitinga þegar mest er. IKEA hefur selt afurðir sem hafa verið lítt vinsælar og því ódýrar, t.d. dæmis lambaskanka. Skankarnir hafa verið í boði í mörg ár en nú leitar IKEA leiða til að nýta fleiri hluta lambsins. Þórarinn mun fara yfir það á fundinum en líka segja frá því að bakaríið í IKEA notar lambafitu ásamt olíu til djúpsteikingar og notast við gamlar ömmuuppskriftir á kökum sem renna út eins og heitar lummur.

Lambakjöt sem lúxusvara

Veisluþjónusta og verslanir Kjötkompanísins í Hafnarfirði, sem Jón Örn Stefánsson rekur, hefur náð góðum árangri í sínu markaðsstarfi og selur vandaðar steikur og fjölbreyttar gæðavörur í sínu kjötborði. Jón Örn og hans starfsfólks notar aðeins hágæða kjöt og fær sérvalda lambahryggi sem eru á bilinu 3,3-3,5 kg. Vinsælasti rétturinn hjá Kjötkompaníi er Lambakonfekt, kótelettur sem seldar eru á 5.990 kr. kílóið. Kjötborðið í verslunum þeirra er sannkallað augnakonfekt og verður sýnishorn úr því á fundinum.

Bændur þurfa að njóta velgengni

Þórarinn og Jón Örn munu segja frá því hvernig þeir hafa ásamt sínu starfsfólki markaðssett lambakjöt og landbúnaðarafurðir með gríðarlega góðum árangri. Annar með því að ná sem hagkvæmustu verði fyrir neytendur en hinn stílar á dýra gæðavöru, en báðir eru að gera frábæra hluti. Það er mikilvægt að slík velgengi skili sér í betra verði til bænda. Auk þeirra Þórarins og Jóns Arnars mun Oddný Steina Valsdóttir, formaður Landssamtaka sauðfjárbænda ávarpa fundinn og Svavar Halldórsson mun fara yfir kynningar- og markaðsmál.

Fyrir alla bændur

Fundurinn á Hellu er fyrir alla bændur. Markaðsmál landbúnaðarafurða er málefni sem skiptir alla bændur máli. Framsögumenn selja allar afurðir, nauta- og svínakjöt, kartöflur og grænmeti í stórum stíl og við treystum því að sjá bændur úr öllum framleiðslugreinum mæti til fundarins. Þeir sem eiga um langan veg að fara ættu að sameinast í bíla eða nota skólabíla á viðkomandi svæði og mæta í hópum og við gerum ráð fyrir afar góðri mætingu. Við finnum strax mikinn áhuga og stefnum á húsfylli. Hermann Árnason fer með gamanmál yfir matnum og gerir grín af sjálfum sér og segir sögur af bændum.

Fundarboðendur eru bændurnir Erlendur Ingvarsson, Skarði og Jón Bjarnason í Skipholti ásamt Ásmundi Friðrikssyni alþingismanni. Vonast er eftir því að bændur mæti vel og fylli Íþróttahúsið á Hellu. Þar verður kynnt árangursrík markaðssetning landbúnaðarafurða sem er að skila gríðarlegum árangri í dag. Fundurinn hefst kl. 10.30 og reiknað með fundarlokum kl. 13.00.

Mikilvægt er að allir skrái sig til fundarins á vef Bændablaðsins, bbl.is. Gert er ráð fyrir góðri aðsókn og er sætafjöldi takmarkaður.

Nánari upplýsingar veitir
Ásmundur Friðriksson, alþingismaður, í síma 894 3900, asmundurf@althing.is.

 

 

Random Image

Nýjar fréttir