-0.5 C
Selfoss

Gistinóttum á hótelum á Suðurlandi í október fjölgaði um 11%

Vinsælast

Gistinætur á hótelum hér á landi í október síðastliðnum voru 366.900 sem er 8% aukning frá sama tíma í fyrra. Um 62% allra gistinátta voru á höfuðborgarsvæðinu eða 225.900, sem er 5% aukning frá fyrra ári. Gistinóttum fjölgaði frá október 2016 í öllum landshlutum, mest á Vesturlandi og Vestfjörðum þar sem þeim fjölgaði um 54%. Á sama tímabili hefur hótelum á svæðinu fjölgað úr 14 í 17 og framboð á herbergjum að sama skapi aukist um 21%. Gistinætur á Suðurlandi voru í október sl. 67.286 sem er 11% aukning fá 2016 en þá voru þær 60.742.

Um 87% gistinátta á hótelum í október voru skráðar á erlenda ferðamenn og fjölgaði þeim um 8% frá fyrra ári. Gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 10%. Bandaríkjamenn gistu flestar nætur (97.800), síðan Bretar (62.800) og Þjóðverjar (22.600), en gistinætur Íslendinga voru 45.300.

Á tólf mánaða tímabili, frá nóvember 2016 til október 2017, var heildarfjöldi gistinátta á hótelum um 4.251.000 sem er 16% aukning miðað við sama tímabil árið áður.

70,5% nýting herbergja á hótelum í október 2017
Herbergjanýting í október 2017 var 70,5%, sem er lækkun um 0,5 prósentustig frá október 2016 þegar hún var 71,0%. Á sama tíma hefur framboð gistirýmis aukist um 6,7%, mælt í fjölda herbergja. Nýtingin var best á höfuðborgarsvæðinu, eða um 84,2%.

Hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum sem opin eru allt árið. Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.

Tölulegar upplýsingar eru frá Hagstofu Íslands.

 

Nýjar fréttir