-0.6 C
Selfoss

Þórsarar semja við nýjan erlendan leikmann

Vinsælast

Þór í Þorlákshöfn hefur samið við bandaríkjamanninn DJ Balentine um að leika með þeim í Dominos deildinni. Balentine er 24 ára, 191 cm hár bakvörður sem lék síðast fyrir Den Bosch í Hollandi. Þar áður hafði hann verið á mála hjá Pieno Zvaigzdes Pasvalys í Litháen eftir að hann lék fjögur ár með bandaríska 1. deildar háskólaliði Evansville árin 2012-16. Þetta kemur fram í frétt á karfan.is.

Fyrir var Þór með Jesse Pellot Rosa sem erlendan leikmann í liði sínu. Hann snéri sig á ökkla fyrir mánuði síðan, en hefur leikið síðustu þrjá leiki meiddur.

Samkvæmt þjálfara liðsins, Einar Árni Jóhannssyni:

„Hann (Pellot Rosa) fór í sprautu í gær [mánudag] og er ekki leikfær í dag. Við erum einfaldlega að meta stöðuna á þessu þar sem bati hefur verið lítill. Við erum búnir að semja við nýjan mann í ljósi stöðunnar og hann er væntanlegur á næstu dögum. Að þessu sögðu liggur ekki fyrir með hvaða hóp við mætum með norður á fimmtudag“. (karfan.is)

Random Image

Nýjar fréttir