-0.9 C
Selfoss

Foreldrafélag ML ályktar um íþróttamannvirki og vegamál

Vinsælast

Á aðalfundi FOMEL, Foreldrafélags Menntaskólans að Laugarvatni, sem haldinn var 24. september sl. var eftirfarandi ályktun samþykkt:

„Fundurinn fagnar því að komin sé lausn á aðgengi nemenda ML að íþróttamannvirkjum á Laugarvatni, enda er íþróttastarf eitt af lykilatriðum í góðu skólastarfi sem og mannlífi á svæðinu.
Aðalfundur foreldrafélags Menntaskólans á Laugarvatni FOMEL, skorar á samgönguyfirvöld að sjá til þess, að Laugarvatnsvegur nr. 37 frá Svínavatni að Laugarvatni fái eðlilegt viðhald enda er vegurinn orðinn stórhættulegur og hefur ekki fengið viðhald svo árum skiptir. Allir vegfarendur, en þó sérstaklega ungir og reynslulitlir ökumenn, eru í stórhættu á ferð um veginn.

Random Image

Nýjar fréttir