7.3 C
Selfoss

Aðsókn að Fischersetri jókst í sumar – vetraropnun tekin við

Vinsælast

Sumaropnun Fischerseturs á Selfossi lauk 15. september sl., en það var opið hvern dag frá 15. maí kl. 13:00–16:00. Við hefur tekið vetraropnun en þá er Setrið opnað samkvæmt samkomulagi. Þeir sem þess óska geta hringt í síma 894-1275 eða sent tölvupóst á netfangið fischersetur@gmail.com.

Aðsóknin jókst frá fyrra ári og voru um 98% gestanna af erlendum uppruna og þá alls staðar úr heiminum eins og t.d. frá Ástralíu, Asíu, Evrópu og Suður- og Norður Ameríku. Flestir gestanna tengdust skákíþróttinni á einn eða annan hátt, en sumir komu af forvitni og enn aðrir vegna dálæti þeirra á Bobby Fischer.

Fimmtán sjáfboðaliðar stóðu vaktina í Setrinu í sumar. Er það deginum ljósara að án þeirra skilnings og vinnuframlags væri Setrið ekki lifandi í dag. Framkvæmdastjórn Fischerseturs vill þakka þeim sérstaklega fyrir óeigingjarna vinnu og aðstoð við uppbyggingu Fischerseturs, sem jafnframt styrkir bæjarfélagið á sviði ferðamennsku og þjónustu við ferðamenn. Þessir einstaklingar voru eftirfarandi í stafrófsröð: Aðalsteinn Geirsson, Árni Erlendsson, Böðvar Jens Ragnarsson, Eiríkur Harðarson, Eysteinn Jónasson, Gissur Jensson, Gísli Sigurðsson, Guðmundur Lýðsson, Gunnar Einarsson, Hjörtur Þórarinsson, Óli Þ. Guðbjartsson, Óskar H. Ólafsson, Vilhjálmur S. Pétursson, Þórður Guðmundsson og Örlygur Karlsson ásamt Sjafnarblómum og starfsfólki þess.

Nýjar fréttir